Allsherjarkenningin: Leitin hefst – Ólöf Rún Benediktsdóttir

„Allsherjarkenningin: Leitin hefst” eftir Ólöfu Rún Benediktsdóttur opnar föstudaginn 15. maí kl. 20:00. Á sýningunni eru málverk, prentverk í formi púsluspils og lítið zine sem er ætlað til að örva hugarflug gesta. Listamaðurinn býður öllum þeim sem koma að setja sitt mark á sýninguna, hripa niður sínar eigin hugleiðingar, skoða það sem hefur safnast saman og púsla.

Verkin sem Ólöf setur frá á sýningunni tengjast hugleiðingum hennar um eðli raunveruleikans. Hún mun jafnframt bjóða áhorfendum að taka þátt í samtali um þeirra eigin upplifun á raunveruleikanum.  Sýningin er fyrsta skrefið í heimspekilegri rannsókn á því hvort að raunveruleikinn sé raunverulegur eða lygi, hvað sé lygi og hvað sé sannleikur, hvort að raunveruleikinn sé yfir höfuð til og svo framvegis.

Orðið raun-veruleiki felur í sér að ekki sé einungis átt við einn veruleika, heldur þann veruleika sem er mótaður af okkar “raunum”, þ.e.a.s. okkar upplifunum. Raun-veruleikinn hlýtur, eðli málsins samkvæmt að verða til í raun-tíma. Það mætti því hugsa um raunveruleikann sem eitt örstutt augnablik sem verður til í huga manns þegar skynjun á ytri og innri veruleika blandast.

Sýningin er unnin í gegnum langt ferli af upplýsingasöfnun, samræðum og vangaveltum. Listamaðurinn nálgast viðfangsefnið á sama hátt og fornleifafræðingur myndi nálgast uppgröft, fer hægt yfir, skrásetur ferlið og gengur ekki að neinu sem vísu. Hugmyndirnar fá að veltast og krauma í huganum lengi áður en verkin verða til.

IMG_2152 Púsl Púsl1 Púsl3 Púsl4

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this:
close-alt close collapse comment ellipsis expand gallery heart lock menu next pinned previous reply search share star