FJALL / MOUNTAIN | Auður Ómarsdóttir

Föstudaginn 1.maí opnaði sýningin FJALL með verkum Auðar Ómarsdóttur.

Í sýningunni rannsakaði Auður leitina að heilaga fjallinu, form fjallsins og hið ytra og innra ferðalag. Hún vann heilunarteikningar yfir nokkurra mánaða skeið sem umbreyttust á sýningunni. IMG_2963

IMG_2900


Auður Ómarsdóttir (1988) myndlistarmaður, útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands 2013. Auður vinnur
mikið út frá teikningu og skoðar teikningu sem innsetningu í formi skúlptúra, málverka, gjörninga eða vídjóverka. Í verkum Auðar leitast hún eftir að halda ekki fullri stjórn á sköpuninni, hún notar ýmsar leiðir til þess að fá utanaðkomandi öfl til þess að spinna með sér. Þegar undirmeðvitund, tæki og tól eða annað fólk stjórnar flæðinu skapast töfrakennt ástand og er það markmið Auðar í myndlist.
Auður er meðlimur Algera studio og hefur tekið þátt í fjölda samsýninga en þetta er þriðja einkasýning hennar.

freyja
LEITIN AÐ HEILAGA FJALLINU RANNSÖKUРVÍSIR 1. MAÍ 2015

Þriðja einkasýning myndlistakonunnar Auðar Ómarsdóttur verður opnuð í galleríi Ekkisens í kvöld.

Sýningin ber nafnið Fjall og hefur Auður unnið ósjálfráðar heilunarteikningar yfir nokkurra mánaða skeið sem umbreytast á sýningunni í eina heild en slík tegund af teikningum er vel þekkt í myndlistarheiminum og vinnur listamaðurinn þær á ómeðvitaðan hátt, oft á tíðum þegar hann er að gera eitthvað annað, til dæmis tala í símann.

„Ég sat til dæmis bara á fundum og byrjaði að teikna án þess að ég væri að spá í hvað ég væri nákvæmlega að gera,“ segir Auður um verkin.

„Á endanum fór ég að sjá fjöll og fattaði eftir á að þetta var svona heilandi, eins og þetta væri hugleiðslan mín.“

Á sýningunni rannsakar hún leitina að heilaga fjallinu, form fjallsins og hið innra og ytra ferðalag og er sýningin helguð öllum fjöllunum sem þarf að klífa og samanstendur af teikningum sem Auður hefur fært yfir á aðra miðla.

„Ég byrjaði á að gera teikningar sem ég yfirfærði í skúlptúra, málverk og í vídeóverk sem er innsetning þar sem ég prentaði sömu teikningarnar á plastfilmur og er búin að byggja risastórt fjall úr þeim.“

Sýningin verður opnuð í Ekkisens í kvöld klukkan 20.00 og verður opin í vikutíma. Boðið verður upp á léttar veitingar á opnuninni.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this:
close-alt close collapse comment ellipsis expand gallery heart lock menu next pinned previous reply search share star