LANDSLAGUR | Anton Logi Ólafsson

Á sýningunni Landslagur sýnir Anton Logi Ólafsson nýstárleg landslags málverk innblásin af náttúru landsins sem hann vann að síðastliðið ár. Sum verkanna eru máluð undir berum himni, önnur eftir ljósmyndum og skissum frá ferðalagi listamannsins um Austurland og Hvalfjörð. Verkin á sýningunni eiga það sameiginleg að sýna nýja mynd af landslagi landsins og eru nýstárleg hvað það varðar. Strigarnir eru einnig sérstakir fyrir þær sakir að vera heimatilbúnir úr dagblöðum og taui og málað er með akrýl, skipalakki og því sem býðst hverju sinni.

Anton Logi Ólafsson (f.1991) útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2015. Hann hefur hingað til unnið verk í margvíslega miðla, þar á meðal gjörningaverk, vídjóverk og skúlptúra. Verk hans hafa oft á tíðum verið samsuða úr fundnum efniviði og endurspeglað dægur- og kynjamenningu. Eftir útskrift hefur hann meðal annars tekið þátt í hústökusýningum Ekkisens, HÁVAÐI II, Dóbía af öðrum heimi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og Kynleikum sem opnuðu í Ekkisens, fluttu sig yfir í Ráðhúsið og lokuðu með þriðju opnun í Tjarnarbíó. Landslagur er fyrsta einkasýning Antons eftir útskrift og þar helgar hann sig málverkinu og stígur inn í landslagshefðina.

 Anton Logi

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this:
close-alt close collapse comment ellipsis expand gallery heart lock menu next pinned previous reply search share star